Such a perfect day...
Yfir 3000 heimsóknir! Woo!! Þessu verður fagnað eftir helgi.
Vaknaði klukkan 7:07 í morgun *STOP* Fór í surtu og rakaði mig *STOP* Setti græjurnar í eyrun og gekk út í strætó með Incubus á fullu blasti. Enska í fyrsta tíma og Cyberts var í góðum fíling. Gerði stólpagrín að Lauru Bush og og Fréttablaðinu á meðan hann fór með Shakespearískar soliloquys í gríð. Svo var tveggja tonna keðja. Neeei, það er ekki satt. Einkahúmor. Helvítið hann Einki, alltaf að troða sér alls staðar. Hann á vegi og samkvæmi og flugvélar og ég veit ekki hvað og hvað. Ég ætlaði í afmælispartý hjá vini mínum á skemmtistað um daginn. Svo rak mig bara í rogastans þegar á dyrunum stóð 'Einkasamkvæmi'. Fór bara heim og nennti ekki svona vitleysu... jæja... Allavega, svo var tveggja tíma gat (já, þetta skilur maður). Við Anna Lind erum með svipaða stundaskrá svo við ætluðum að hafa kósýstund í sófanum. Við stóðum í dágóða stund fyrir framan autt sófaplássið áður en við áttuðum okkur á vandamálinu. Plássið var autt. Það var enginn sófi. Eftir ítarlega leit mína á meðan Anna var að snyrta á sér neglurnar fann ég sófann inni í sjoppu. Eftir málamiðlanir og sálfræðilegar aðfarir dró ég sófann út úr sjoppunni með hjálp Emmu og ýtti honum svo á sinn stað. Kósýcozy í tvo tíma og hádegishlé. Svo var Spænska. Vosotros endingin fer endalaust í taugarnar á mér. Hún er ekki notuð í Suður-Ameríku. Endalaus endaleysa.
Svo skrópaði ég í sálfræði / Þýsku (orðað svona þar sem þessir tímar stangast á) og fór í klippingu á Suðurlandsbraut. Boggi skutlaði mér. Ákvað að fara kannski í Grafíska hönnun í framtíðinni því þó að það sé til alveg dobía af grafískum hönnuðum er vöntun á hönnuðum sem kunna að teikna / fara með blýant. Og þeir eru víst vinsælir ef marka á nær-þrítugar hargreiðslukonur á ecco sandölum. Svo gekk ég heim í glimrandi fíling. Ég held það sé frakkinn (og tónlistin úr spilaranum). Það er bara frábært að ganga í þægilegri flík. Ég tók dansspor og söng með lögum eins og Lovin' What I Got með Sublime og Three is a Magic Number með Blind Melon. Góð lög. Party Party.
Það er að vissu leyti skrýtið og svolítið óþægilegt að líða svona þegar mér ætti að líða illa. Ég get bara ekkert að þessu gert. Ég veit líka að afi hefði viljað mig svona en ekki með hausinn milli hnjánna í einhverri hnípni. Honum fannst alltaf mest gaman að mér í svona fíling.
Feeeaaooowwn!
Þess má geta að Hrafninn segist vera byrjaður að blogga aftur. Yay!
--Drekafluga. Jolly good, then. Jolly good.--
fimmtudagur, 29. janúar 2004
.Yowzah!
Nýji frakkinn er búinn að vekja verðskuldaða athygli. Mætti í honum í Spænsku í morgun og leið bara öfgavel. Líður reyndar ennþá öfgavel þar sem ég fór upp á skrifstofu áðan og Dísa bara dreif mig inn á kennarastofu og gaf mér að borða. Geðveikt gott brauð og svo bara rólegheit. Ég er líklega á einhverjum sérsamning sem ég vissi ekki af.
Í kvöld er ég svo að fara á Lísu í Undralandi í annað sinn. ACME weirdness in a can. Mér er meir að segja að takast að draga Höllu með mér. Stemmning. Nú þarf ég hinsvegar að fara í Enskutíma og get þess vegna ekki skrifað meira í bili. Ég bæti við þetta ef ég hef tíma í dag.
---
Og svo var það Stællinn. Ég fór með Maríu. Það var gott. Góður matur og góður félagsskapur. En nú er ég alveg búinn. Ætla að hvíla mig fyrir kvöldið. Btw, þá er lítill punktur vinstra meginn við titilinn. Smellið á hann. Skemmtileg síða.
tack tack
--Drekafluga, feeeaaowwn!--

miðvikudagur, 28. janúar 2004
Ég er svo ömurlegur penni stundum að það er ekki eðlilegt!
Skil á árbókartexta liggja handan við hornið. Halla samdi flottan texta og vísu í tveimur erindum um mig og ég anda einhverju klúðri á blað um hana. Þetta er ekki gott. Alls ekki gott. Svo þarf ég líka að klára minningargreinina um afa en hún gengur þó að öllum líkindum betur þar sem ég má vera persónulegri.
Í stað þess að fara í kóræfingu í dag fór ég í kaupæði með móður minni og systur. Ég er verri en margar stelpur þegar kemur að kaupum á hlutum hvers konar en þó helst fötum. Ég verð að segja að innihald fataskápsins míns stórfríkkaði eftir daginn. Núna á ég nýja skó og nýjan frakka, og svo geeeeeðveik jakkaföt og skyrtu (ef ekki hefði verið fyrir útsölur hefði þetta numið rétt undir 50.000kr). Damn hvað ég tók mig vel út í þessu. Ef stelpurnar elta mig ekki á árshátíðinni í þessu þá gerist það aldr- *slap* Takk. Ég þurfti kipp niður á jörðina aftur. En talandi um árshátíðina þá er skráning í herbergi á morgun. Dúndur stuð! Ég verð með tilvonandi Ungfrú Kvennó, henni Höllu í herbergi og mun sitja til borðs með 4-T sem svo skemmtilega vill til að er skemmtilegasti bekkurinn. En ég þarf að fara að skrifa. Þetta gengur ekki.
Svolítið þreyttur þrátt fyrir hresst blogg.
(ps, tékkið á þessu. snilldarsnilld.)
(.......og þessu.)
ta.
--Drekafluga. James Bond's rival in suit.--

þriðjudagur, 27. janúar 2004
Nú verður flutt smásagan um Steina Tröllastrák. Vinsamlegast slökkvið á farsímum og boðtækjum hvers konar.
Einu sinni var lítill tröllastrákur sem hét Steini. Steini var mjög lítill tröllastrákur. Reyndar var Steini aðeins 4cm á hæð. Steini átti heima í stórum stórum helli langt langt langt uppi í stóru stóru stóru fjalli. Steini vildi vera voða voða voða stór og át þess vegna alltaf mikinn mikinn hafragraut. Ja, eins mikinn og fjögurra sentrimetra tröllastrákur getur innbyrt. Einu sinni þegar Steini var úti að ganga uppi í voða voða voða stóra fjallinu sínu kom Gummi Valur á stóru stóru stóru strigaskónum sínum og steig beint ofan á Steina. Þá varð Steini voða voða voða reiður og lamdi Gumma utan í stóran stóran stóran stein. Svo fór hann heim í stóra stóra stóra hellinn sinn og fékk sér fullan pott af hafragraut svo hann yrði stór og sterkur. Allavega sterkur.
Endir.
Mig minnir að þetta sé að einhverju leyti frá bróður mínum en ég er ekki viss lengur. Þetta er allavega eldgömul saga, sett hér í dag af því ég er nokkuð hugmyndasnauður. Er að d/l sautjánda þættinum af Harry og Heimi og hlæja agalega en fyrir utan það er ég bara frekar tómur.
tack tack
--Drekafluga. Ekki frú Díana.--

mánudagur, 26. janúar 2004
Ég fór í skólann í morgun til þess eins að láta taka af mér mynd. Var voðalega fínt greiddur og svona. Fór svo heim. Var ekki í skapi til að vera í skólanum og í þetta skiptið létu elskurnar á skrifstofunni það eftir mér að fara bara heim. Ég er eins og efnissuga á DC og er núna að hlusta á Harry og Heimi og gæti ekki verið í léttara skapi miðað við aðstæður. "Jæja Heimir. Hvað skyldum við vera búnir að flækja okkur í núna?" "Ég veit ekki með þig, en ég er flæktur í hljóðnemasnúruna." Á leiðinni heim sat ég í strætó með manni sem var klæddur grunsamlega svipað og tékkneska landsliðið. Mig hálf langaði að berja hann. Það er einhvern veginn þannig, í kring um svona keppnir, að allir, jafnvel hörðustu antisportistar, sameinast til að styðja 'Strákana okkar'. Og svo taka þeir upp á því að spila illa og það, með áhagstæðri dómgæslu í tveimur leikjum, var nóg til að henda okkur út úr keppninni. Ég stóð með þeim allt fram á síðustu sekúndu síðasta leiks en það dugði ekki til. Ég þoli samt ekki fólk sem hættir að horfa og skiptir um stöð þegar þeim gengur illa. Þetta er eins og með landsliðið í fótbolta: Skilyrðislaus stuðningur. "Áfram Ísland, jafnvel þó við getum ekki neitt." Svo fór það óneinanlega í taugarnar á mér að ef við hefðum skorað einu marki fleira eða hindrað eitt mark í viðbót í hverjum leikjanna sem er, þá værum við ennþá inni í keppninni.
Skrýtið hvað maður talar um þá sem 'okkur'. Það er ekki eins og ég hafi tekið virkan þátt í leiknum. Tjah... Á eftir verð ég samt að fara upp í Kópavog að skrifa um Höllu og reyna að hvetja hana til dáða á meðan hún skrifar vonandi ekki of illa um mig fyrir Árbókina. Það verður nú stuð. Það verður svo mikið stuð að ég verð bara að láta fylgja þessa mynd af grímuballinu (ég vona að þetta komi ekki illa út í 1024 x 768pix) þar sem var líka stuð jafnvel þótt sólgleraugun mín hafi verið myrt á hrottalegan hátt. Af skiljanlegum ástæðum var fullt, fullt af fólki sem hafði ekki hugmynd um hvað ég var en ég var útskriftarnemi í Króatíu. Króatía 2004! Woo!
---
---
tack tack
--Drekafluga, download gimp--

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)