sunnudagur, 26. október 2008

Lil' Spidey



Illustrator er búinn. Það má kalla þetta upphitun fyrir
Photoshop áfangann en hann byrjar núna eftir helgi.

tack tack

--Drekafluga, eins og barn með litabók--

fimmtudagur, 16. október 2008

Arte Up!




Auglýsingar fyrir hárgreiðslustofu og mynd af mér. Nánari lýsingu
á verkunum má finna á textanum sem fylgir þeim á Deviant Art. =)

tack tack

--Drekafluga skóladrengur--

miðvikudagur, 8. október 2008

Jason Statham


Fyrsta verkefni var að gera fimm silhouette myndir af
manneskju, því næst áttum við að gera svarthvíta útgáfu
og svo loks finna mynd í Computer Arts Magazine og
yfirfæra stílinn á henni yfir á myndina okkar.


Ég er búinn í skrautskrift og byrjaður í Illustrator =)

tack tack

--ánægð Drekafluga--

mánudagur, 6. október 2008

Geir umorðaður

"Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að ekkert af þessu sé okkur að kenna og við getum hvort eð er ekkert gert, sama hvað þeir sem hafa vit á þessu segja. Við ætlum því að halda áfram að gera ekkert enda höfum við engan tíma til þess, erum bara hálfnuð með jatsímótið. Samfylkingin er tveimur yfir og við ætlum að halda aðeins áfram að leika okkur svo við þurfum ekki að svara öllum þessum leiðinlegu spurningum. Já alveg rétt, bankarnir eru vondir og þurfa að laga þetta. Ok, hver vill bjór?"

Geir, þú ert eflaust vænsti kall en alveg steingeldur stjórnmálamaður sem er svosem í stíl við þetta stjórnarsamstarf. Jóhanna er svo gott sem sú eina sem vinnur fyrir kjósendur.

tack tack

--Drekafluga, hristir hausinn dapur í bragði--